Fara beint í efnið

Hvað má draga þungan eftirvagn?

Í skráningarskírteini bíls er hægt að sjá hvað eftirvagn má mest vera þungur sem bíllinn má draga. Þar sést annars vegar hvað bremsulaus vagn má mest vera þungur (til dæmis lítill tjaldvagn) og hins vegar hvað eftirvagn með bremsum má mest vera þungur. Til viðbótar gilda takmarkanir í ökuskírteini um hvað má draga þunga vagna og hvað vagnlestin (bíll og vagn) má mest vera þung. Nálgast má frekari upplýsingar á Mínum síðum.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?