Fara beint í efnið

Græn skref Samgöngustofu

Samgöngustofa tekur þátt í grænum skrefum fyrir ríkisstofnanir sem miðar að því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna.

  • Við hvetjum viðskiptavini okkar til að velja umhverfisvænan ferðamáta þegar komið er til okkar í Ármúla 2.

  • Samgöngustofa hvetur einnig til rafrænna samskipta í stað heimsókna og í boði er að halda fjarfundi.

  • Ef þú átt erindi í Ármúlann íhugaðu þá vistvænar samgöngur.

  • Aðgengi fyrir hreyfihamlaða: Bílastæði næst aðalinngangi er stæði fyrir hreyfihamlaða.

  • Hjólagrindur eru fyrir framan aðalinngang. Verkfæri og hjólapumpu eru hægt að fá að láni hjá afgreiðslu ef þarf.

  • Strætó stansar á Háaleitisbraut, spölkorn frá húsnæði Samgöngustofu. Þar stansa strætisvagnar 4 og 11.

  • Einnig er stoppistöð Strætó við Nordica hótel á Suðurlandsbraut, þaðan er 6 mínútna ganga að Ármúla 2, þar stansa leiðir 2, 5, 15 og 17.

  • Gjaldfrjáls bílastæði eru fyrir framan aðalinngang.

Græn skref - samgöngustofa

Græn skref

Við hvetjum ykkur til að velja umhverfisvænan ferðamáta þegar komið er til okkar í Ármúla 2 

Nánar um græn skref