Fara beint í efnið

Samgöngustofa: Leyfisveitingar og viðurkenningar

Hvar get ég séð hver staðan er á umsókninni minni um starfsleyfi bílaleigu?

Staða á umsókn er ekki skráð inni á heimasíðu Samgöngustofu. Afgreiðslutími umsókna um starfsleyfi til rekstur bílaleigu getur verið allt að 15 virkir dagar. Beiðni um umsögn viðkomandi sveitarfélags er send þegar öll gögn og greiðsla vegna umsóknar hafa borist til Samgöngustofu. Óskað er eftir að svar frá sveitarfélagi berist innan 30 daga frá því að beiðni er send. Umsækjandi fær tölvupóst um stöðu umsóknar hverju sinni innan þess tíma. Ef enginn tölvupóstur hefur borist og afgreiðslutími er kominn umfram útgefinn afgreiðslutíma er hægt að senda fyrirspurn til Samgöngustofu í netspjalli eða hafa samband símleiðis.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?