Fara beint í efnið

Samgöngustofa: Nám, réttindi og skírteini einstaklinga

Er hægt að fá einstaklingsbundna tímasetningu fyrir prófasýningu flugprófa?

Próftökum í bóklegum flugprófum hjá Samgöngustofu er heimilt að sækja um prófsýningu eftir hverja prófalotu. Þeim einstaklingum, sem sækja um að skoða sín próf og greiða fyrir það sérstakt gjald, er heimiluð prófsýning á fyrirfram auglýstri dagsetningu. Undirbúningur og framkvæmd prófsýninga er tímafrekt ferli og höfum við því miður ekki tök á því að halda einstaklingsbundnar prófsýningar fyrir hvern og einn próftaka.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?