Fara beint í efnið

Endurhæfingarlífeyrir

Umsókn um endurhæfingarlífeyri

Fjárhæðir og frítekjumörk

Endurhæfingarlífeyrir er tekjutengdur, sem þýðir að aðrar tekjur hafa áhrif til lækkunar.

Fullur endurhæfingarlífeyrir er:

  • 421.380 krónur á mánuði fyrir skatt með heimilisuppbót

  • 335.128 krónur á mánuði fyrir skatt án heimilisuppbótar

Sundurliðun upphæða

Ef tekjur frá öðrum en TR, lífeyrissjóður, laun og fjármagnstekjur, eru undir frítekjumörkum færð þú:

  • grunnlífeyri 63.020 krónur á mánuði,

  • tekjutryggingu 201.807 krónur á mánuði,

  • aldursviðbót, sem fer eftir aldri fyrsta mats á örorku eða endurhæfingu.

Framfærsluuppbót fylgir oft greiðslum örorku- og endurhæfingarlífeyris en hún er ekki föst upphæð heldur fer eftir framfærsluviðmiðum, hún hefur einnig sitt eigið sérstaka frítekjumark.

Aldursviðbót

Aldursviðbót greiðist þeim sem fá greiddan örorkulífeyri og endurhæfingarlífeyri. Upphæð miðast við þann aldur sem einstaklingur var á þegar hann fékk fyrst endurhæfingar- eða örorkumat. Þetta á ekki við um örorkustyrk.

Önnur réttindi

Þú getur líka átt rétt á ýmsum viðbótargreiðslum eftir þínum aðstæðum, til dæmis:

Umsókn um endurhæfingarlífeyri

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun