Fara beint í efnið

Endurhæfing - leiðbeiningar fyrir fagfólk

Endurhæfingu er ætlað að efla einstakling sem getur ekki sinnt störfum á vinnumarkaði vegna slyss eða sjúkdóms.

Markmiðið er að ná aftur starfshæfni eða auka atvinnuþátttöku.

Endurhæfingarlífeyrir tryggir einstaklingnum framfærslu á meðan á endurhæfingu stendur.

Endurhæfing þarf að vera fullreynd áður en byrjað er að meta örorku.

Skilyrði

Til þess að einstaklingur geti sótt um endurhæfingarlífeyri þarf viðkomandi að:

  • vera milli 18 og 67 ára

  • hafa átt lögheimili á Íslandi samfellt síðustu 12 mánuði

  • vera í virkri endurhæfingu í umsjón heilbrigðismenntaðs fagfólks

Þar að auki verða önnur réttindi að vera fullnýtt.

Þetta á við um:

  • veikindarétt frá vinnuveitanda

  • sjúkrasjóð stéttarfélags

Þar að auki þarf að stöðva greiðslur:

  • úr fæðingarorlofssjóði

  • frá atvinnuleysissjóði Vinnumálastofnunar

Umsækjandi endurhæfingarlífeyris þarf að skila inn staðfestingum frá ofangreindum aðilum með umsókn sinni.

Ástæður synjunar

Umsóknum er synjað ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði. Til dæmis ef viðkomandi:

  • hefur ekki lokið áunnum rétti frá sjúkrasjóði stéttarfélags

  • hefur ekki lokið veikindarétti frá vinnuveitanda

  • hefur ekki átt lögheimili á Íslandi síðustu 12 mánuði

  • er ekki í endurhæfingu sem tekur á heildarvanda sem leiddi til óvinnufærnis

  • er ekki byrjaður í endurhæfingu / er í bið eftir úrræðum

  • er í það miklu námi eða vinnu að ekki er svigrúm til að sinna þeim endurhæfingarúrræðum sem taka á heilsufarsvanda

  • hefur lokið 36 mánaða endurhæfingartímabili og uppfyllir ekki skilyrði um framlengingu

  • hefur lokið 60 mánaða endurhæfingartímabili

Samskipti við Tryggingastofnun

Til að fá upplýsingar um stöðu umsóknar þarf að gefa upp leyninúmer umsækjanda.

Leyninúmer getur umsækjandi fundið á Mínum síðum.

Símatímar fyrir fagfólk vegna endurhæfingarmála eru alla virka daga milli klukkan 10 og 15 í síma 560 4400 eða 560 4430.

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið endurhaefing@tr.is

Gögnum á að skila rafrænt í gegnum Mínar síður eða Signet Transfer. Ekki er tekið við gögnum í tölvupósti.

Hlutverk fagfólks

Hlutverk fagfólks sem hefur umsjón með endurhæfingu er að:

  • veita stuðning og ráðgjöf varðandi markmið og úrræði

  • gera endurhæfingaráætlun í samráði við einstaklinginn

  • ákveða tímaramma fyrir endurhæfinguna

  • senda tilvísun á viðeigandi endurhæfingarúrræði og sérfræðinga

  • leita leiða til að hefja endurhæfingu sem fyrst

  • fylgjast með framvindu endurhæfingar

Að hverju tímabili loknu þarf líka að:

  • leggja mat á endurhæfingu með upplýsingum um framvindu

  • gera endurmat á áætlun ef aukinni vinnufærni var ekki náð á tímabilinu

Hætti einstaklingur í endurhæfingu ber fagfólki skylda til að tilkynna það til TR.

Hlutverk Tryggingastofnunar

TR hefur eftirlit með:

  • að lífeyrisþegi sinni endurhæfingu sinni

  • að endurhæfingaráætlun sé framfylgt

  • að skilyrði fyrir endurhæfingarlífeyri séu að öðru leyti uppfyllt

Eftirlitið felst í því að fá upplýsingar í formi stuttrar greinagerðar um hvernig endurhæfing gekk á fyrra tímabili.

Umsjónaraðila endurhæfingaráætlunar ber að tilkynna Tryggingastofnun ef:

  • endurhæfingu er ekki sinnt í samræmi við fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun

  • einstaklingur hættir í endurhæfingu

Lög og reglugerðir

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun