Starfatorg - laus störf hjá ríkinu
Leit
230 störf fundust
Skrifstofustörf
Matvælastofnun
Sumarafleysing - Móttaka og almenn skrifstofustörf
Matvælastofnun auglýsir eftir einstaklingi með ríka þjónustulund til sumarafleysinga á inn- og útflutningsdeild sem er með aðsetur á Laugavegi 166. Um er að ræða 100% starf á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst.
Höfuðborgarsvæðið
Stórhöfða 23
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á dagdeild skurðlækninga í Fossvogi
Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing í okkar góða hóp á dagdeild skurðlækninga í Fossvogi. Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag. Dagdeild skurðlækninga heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu.
Höfuðborgarsvæðið
Fossvogi
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild Landakoti
Tækifæri fyrir framsækinn hjúkrunarfræðing! Á göngudeild Landakoti vinnur fjölfaglegt teymi að því að veita einstaklingsmiðaða umönnun og stuðning fyrir einstaklinga sem búa heima.
Höfuðborgarsvæðið
v/Túngötu
Heilbrigðisþjónusta
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Verkefnastjóri á röntgendeild - Geislafræðingur HSN Húsavík
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir að ráða metnaðarfullan geislafræðing til að taka að sér hlutverk verkefnastjóra á röntgendeild á Húsavík. Viðkomandi starfar í dagvinnu og á bakvöktum um helgar. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.
Norðurland eystra
Auðbrekka 4
Sumarstörf
Samkeppniseftirlitið
Hagfræðinemar - Sumarstarf hjá Samkeppniseftirlitinu
Samkeppniseftirlitið auglýsir eftir hagfræðinema til starfa nú í sumar. Viðkomandi mun í störfum sínum vinna með aðalhagfræðingi og sérfræðingum stofnunarinnar.
Höfuðborgarsvæðið
Borgartún 26
Kennsla og rannsóknir
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Kennari í rafeindavirkjun
Verkmenntaskólinn á Akureyri óskar eftir að ráða kennara á rafdeild, með áherslu á rafeindavirkjun. Leitað er að einstaklingi sem skorar hátt á sviði samskipta, hefur áhuga á fjölbreyttri kennslu og fellur vel að aðstæðum og þörfum skólans. Um er að ræða 100% starf.
Norðurland eystra
Eyrarlandsholti
Heilbrigðisþjónusta
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Yfirlæknir á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, auglýsir eftir yfirlækni á Þróunarmiðstöð Íslenskrar heilsugæslu. Þróunarmiðstöð Íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH) leiðir faglega þróun innan heilsugæslu á landsvísu.
Höfuðborgarsvæðið
Álfabakki 16
Sumarstörf
Vegagerðin
Sumarstarf í skjalateymi Vegagerðarinnar
Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum sumarstarfsmanni til að taka þátt í verkefni sem snýr að stafrænni umbreytingu gagna. Starfið felur í sér úrvinnslu og stafræna skráningu pappírsgagna sem nú eru skráð í Lotus Notes.
Höfuðborgarsvæðið
Suðurhrauni 3
Heilbrigðisþjónusta
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæsla - Egilsstaðir
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á Heilsugæsluna á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 80-100% og staðan er laus nú þegar.
Austurland
Lagarás 17
Sérfræðistörf
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Röntgenlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands - Tækifæri til að móta þjónustu á Suðurlandi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) óskar eftir sérfræðingi í myndgreiningalækningum í fullt starf eða samkvæmt samkomulagi. Um er að ræða ótímabundið starf sem er laust frá 1. júlí 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Óstaðbundið
Árvegi
Stjórnunarstörf
Náttúruperlur Suðurlands og suðvesturlands - stjórnandi
Náttúruverndarstofnun auglýsir til umsóknar starf umdæmisstjóra náttúruverndarsvæða á suður- og suðvesturlandi.
Suðurland
Austurvegi 4
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Deildarstjóri faghópa á barna- og unglingageðdeild
Við leitum að öflugum stjórnanda með menntun á sviði iðjuþjálfunar, sálfræði, félagsráðgjafar eða þroskaþjálfafræða til að leiða og efla starfsemi barna- og unglingageðdeildar.
Höfuðborgarsvæðið
Dalbraut 12