Þjónustuaðili
Samkeppniseftirlitið
Upplýsingar um starf
Starf
Hagfræðinemar - Sumarstarf hjá Samkeppniseftirlitinu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Hagfræðinemar - Sumarstarf hjá Samkeppniseftirlitinu
Samkeppniseftirlitið auglýsir eftir hagfræðinema til starfa nú í sumar. Viðkomandi mun í störfum sínum vinna með aðalhagfræðingi og sérfræðingum stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoð við sérfræðinga stofnunarinnar
Söfnun gagna, tölfræðileg úrvinnsla og skrif
Þátttaka í öðru þróttmiklu starfi Samkeppniseftirlitsins á sviði hagfræði
Hæfniskröfur
A.m.k. tveggja ára nám í hagfræði
Gott vald á aðferðum til hagrannsókna og notkun hugbúnaðar við tölfræðigreiningar og úrvinnslu gagna
Góð greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna
Hæfni í samskiptum og geta til að vinna undir álagi
Færni til að tjá sig í ræðu og riti
Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn ferilskrá, einkunum og kynningarbréfi sem tilgreinir hvernig umsækjandi uppfyllir menntunar- og hæfniskröfur.
Sótt er um starfið rafrænt á www.starfatorg.is.
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Samkeppniseftirlitið fylgist með samkeppni fyrirtækja í síbreytilegu atvinnulífi landsins. Eftirlitið spornar við óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri, vinnur gegn skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum og auðveldar aðgang nýrra keppinauta að markaðnum.
Hjá Samkeppniseftirlitinu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga sem hefur brennandi áhuga á samkeppnismálum og nær árangri í starfi. Samkeppniseftirlitið leggur áherslu á að starfsmenn þess fái tækifæri til að sinna spennandi verkefnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Karítas Margrét Jónsdóttir
Tölvupóstur: karitas.m.jonsdottir@samkeppni.is
Þjónustuaðili
Samkeppniseftirlitið
Upplýsingar um starf
Starf
Hagfræðinemar - Sumarstarf hjá Samkeppniseftirlitinu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026