Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæsla - Egilsstaðir
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
22.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæsla - Egilsstaðir
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á Heilsugæsluna á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 80-100% og staðan er laus nú þegar.
Hvetjum hjúkrunarfræðinga til að kynna sér þau hlunnindi sem fylgja starfinu, þar á meðal möguleika á húsnæðisaðstoð og flutningsstyrk fyrir aðflutta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn heilsugæsluþjónusta. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf á heilsugæslu þar sem unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs. Bakvaktir utan dagvinnutíma eru í boði. Hvetjum hjúkrunarfræðinga að kynna sér þau hlunnindi sem fylgja starfinu.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Kostur er að viðkomandi hafi viðbótarnám í heilsugæsluhjúkrun.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Berglind Andrésdóttir
Tölvupóstur: berglind.andresdottir@hsa.is
Magnfríður Ólöf Pétursdóttir
Tölvupóstur: magnfridur.o.petursdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæsla - Egilsstaðir
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
22.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026