
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri á röntgendeild - Geislafræðingur HSN Húsavík
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Verkefnastjóri á röntgendeild - Geislafræðingur HSN Húsavík
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir að ráða metnaðarfullan geislafræðing til að taka að sér hlutverk verkefnastjóra á röntgendeild á Húsavík. Viðkomandi starfar í dagvinnu og á bakvöktum um helgar. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Leitað er að einstakling sem er sjálfstæður í starfi, sýnir frumkvæði og hefur áhuga á að taka þátt í áframhaldandi þróun myndgreiningarþjónustu HSN.
Á Húsavík er heilsugæsla og einnig eru heilsugæslustöðvar á Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri, Laugum og Mývatnssveit. Jafnframt er á Húsavík sjúkradeild og hjúkrunardeildir og einnig er þar starfrækt göngudeild sérfræðiþjónustu.
Hér má sjá kynningu á HSN í Þingeyjarsýslum. Þar sem þjónusta og gott starfsumhverfi koma saman
Helstu verkefni og ábyrgð
Daglegur rekstur og skipulag verkefna á röntgendeild
Framkvæmd almennra myndgreiningarannsókna
Skráning í upplýsingakerfi stofnunar
Ábyrgð á verkferlum, gæðamálum og innleiðingu nýrra lausna
Þjálfun og leiðsögn starfsfólks. Þátttaka í kennslu
Þátttaka í stefnumótun og þróunarverkefnum deildarinnar
Önnur tilfallandi verkefni skv. beiðni næsta yfirmanns
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi geislafræðings
Starfsreynsla á röntgendeild æskileg
Reynsla í Verkefnastjórnun kostur
Jákvæðni og mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
Frumkvæði, áhugi og metnaður til að ná árangri
Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi og prófskírteinum.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Áslaug Halldórsdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: aslaug.halldorsdottir@hsn.is
Sími: 432 4840

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri á röntgendeild - Geislafræðingur HSN Húsavík
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026