Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Deildarstjóri faghópa á barna- og unglingageðdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.04.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026

Deildarstjóri faghópa á barna- og unglingageðdeild

Við leitum að öflugum stjórnanda með menntun á sviði iðjuþjálfunar, sálfræði, félagsráðgjafar eða þroskaþjálfafræða til að leiða og efla starfsemi barna- og unglingageðdeildar. Í kjarna starfsins er stuðningur og aðhald við þverfaglega liðsheild þar sem þarfir þjónustuþega, gagnreyndar aðferðir og öryggi eru í forgrunni. Starfið er unnið í nánu samstarfi við deildarstjóra hjúkrunar, yfirlækni, forstöðuhjúkrunarfræðing og annað samstarfsfólk. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kvenna- og barnaþjónustu.

Barna- og unglingageðdeild samanstendur af legudeild, dagdeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda og fjölskyldur þeirra. Á barna- og unglingageðdeild starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu, faglega örvandi og líflegu starfsumhverfi þar sem kapp er lagt á menningu sálræns öryggis. Unnið er í þverfaglegum teymum og mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi. Þjónustan er í stöðugri framþróun. Áhersla er lögð á skilvirkni og nýsköpun og sjónarmið þjónustuþega eru nýtt til umbóta.

Deildarstjóri faghópa er leiðtogi hóps fagfólks með fjölbreyttan þekkingargrunn og hefur þríþætta ábyrgð: faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 10. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og skipulagi starfseminnar, stuðlar að fjölfaglegri þekkingarþróun og umbótastarfi, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni

  • Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun

  • Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildanna

  • Er virkur þátttakandi í samstarfi stjórnenda kvenna- og barnaþjónustu

  • Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala

  • Er í virku samtali við samstarfsstofnanir og helstu hagaðila

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sálfræðings, þroskaþjálfa, félagsráðgjafa eða iðjuþjálfa

  • Haldbær starfsreynsla sem klínískur heilbrigðisstarfsmaður

  • Farsæl reynsla af þverfaglegri teymisvinnu

  • Viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi

  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur

  • Leiðtogahæfni, geta til að vinna undir álagi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, færni til að tjá sig í mæltu og rituðu máli

  • Góð tölvukunnátta, geta og vilji til að læra nýjungar

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, deildarstjóri, stjórnunarstarf, sálfræðingur, þroskaþjálfi, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Dalbraut, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurveig Sigurjónsd Mýrdal

Tölvupóstur: sigurves@landspitali.is

Inga Lára Ólafsdóttir

Tölvupóstur: ingalo@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Deildarstjóri faghópa á barna- og unglingageðdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.04.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026