Fara beint í efnið

Hvernig veit ég hvað ég fæ mikla dagpeninga vegna meðferðar erlendis?

Í upplýsingabréfi sjúklings sem sent er í Réttindagátt sjúklings, ásamt afgreiðslubréfi, kemur fram reikniformúla fyrir dagpeninga. Dagpeningagreiðslur falla niður hjá sjúklingi á meðan innlögn stendur. Greiddir eru hálfir dagpeningar til sjúklings á innlagnar- og útskriftardegi. Dagpeningar fylgdarmanns haldast óbreyttir þrátt fyrir innlögn sjúklings.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?