Fara beint í efnið

Hvernig er hægt að koma bíl sem er ekki á númerum á milli staða?

Ef ekki er hægt að taka út númerin þá er besta og öruggasta leiðin að fá bílaflutningabíl til að flytja hann eða draga á milli staða. Við minnum á að þú getur tekið út númer á bíl (hafi þau ekki verið afklippt), jafnvel þótt hann hafi ekki gilda skoðun, ef hann er í eðlilegu ástandi. Þá skrifar eigandi undir yfirlýsingu þess efnis og færir bílinn í skoðun strax eftir að númerin voru sett á. Nálgast má frekari upplýsingar hér.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?