Fara beint í efnið

Hvenær þarf að nota aukanúmer fyrir kerru?

Dragi bifreið ökutæki sem ekki er skráningarskylt og skyggir á skráningarmerki bifreiðarinnar, skal merkja það að aftan með auka skráningarmerki sem hefur sömu áletrun og sama lit og skráningarmerki bifreiðarinnar. Sama á við ef búnaður aftan á skráningarskyldu ökutæki sem ekið er skyggir á skráningarmerki þess.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?