Fara beint í efnið

Endurveiting íslensks ríkisfangs

Fædd og uppalin á Íslandi

Tilkynning um endurveitingu ríkisfangs

Einstaklingur sem hefur misst íslenskt ríkisfang getur að ákveðnum skilyrðum uppfylltum fengið íslenskt ríkisfang að nýju með því að óska eftir því við Útlendingastofnun.

Fái einstaklingur íslenskt ríkisfang veitt að nýju, öðlast ógift börn hans undir 18 ára aldri einnig íslenskt ríkisfang, ef hann hefur forsjá þeirra og þau eiga lögheimili hér á landi.

Skilyrði endurveitingar

  • Umsækjandi skal vera fæddur með íslenskan ríkisborgararétt,

  • hafa átt lögheimili hér á landi samfellt til 18 ára aldurs og

  • hafa átt lögheimili hér á landi síðustu tvö árin áður en umsókn er lögð fram.

Umsókn

Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.

Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar. Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar.

Kostnaður

Afgreiðslugjald er 13.500 krónur, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds. Umsókn er ekki tekin til vinnslu fyrr en greiðsla hefur borist.

Afgreiðslutími

Hægt er að fylgjast með því hvaða umsóknir hafa verið teknar til vinnslu á síðunni staða mála og afgreiðslutími dvalarleyfa.

Fylgigögn

Sjá nánari leiðbeiningar varðandi kröfur til skjala. Ekki þarf vottun á íslensk vottorð.

  1. Umsókn þarf að vera í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda.

  2. Afrit erlends vegabréfs umsækjanda og íslensks vegabréfs ef til er.

  3. Staðfest afrit af frumriti fæðingarvottorðs.

    Frumritið skal vera vottað með ‚apostille‘ vottun eða tvöfaldri staðfestingu, og síðan tekið af því staðfest afrit.

  4. Staðfest afrit eða frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda á fæðingarvottorði.

     Þetta á við ef erlend vottorð eru á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli.

  5. Gögn um veitingu núverandi erlends ríkisfangs.

  6. Búsetutímavottorð frá Þjóðskrá.
    Vottorðið tilgreinir í hvaða landi eða löndum umsækjandi hefur átt lögheimili frá upphafi lögheimilisskráningar á Íslandi til dagsins í dag.

Fylgigögn umsókna fyrir börn

Viðbótargögn fyrir umsækjanda, sem sækir einnig um að barn hans yngra en 18 ára hljóti ríkisborgararétt með foreldri.

  1. Afrit erlends vegabréfs barns og íslensks vegabréfs ef til er.

  2. Staðfest afrit af frumriti fæðingarvottorðs barns.

    Frumritið skal vera vottað með ‚apostille‘ vottun eða tvöfaldri staðfestingu, og síðan tekið af því staðfest afrit.

  3. Staðfest afrit eða frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda á fæðingarvottorði barns.

    Þetta á við ef erlend vottorð eru á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli.

  4. Forsjárgögn.

    Á aðeins við ef annað foreldri fer með forsjá barns. Frumrit gagna skulu vera vottuð með ‚apostille‘ vottun eða tvöfaldri staðfestingu, og síðan tekið af þeim staðfest afrit. Ef gögnin eru á öðru máli en ensku eða Norðurlandamáli skal fylgja staðfest afrit eða frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda.

  5. Samþykki forsjáraðila.

    Á aðeins við ef báðir foreldrar fara með forsjá barns.

  6. Samþykki barns á aldrinum 12-18 ára.

Lög

Íslenskur ríkisborgararéttur er endurveittur þeim sem eru fæddir og uppaldir á Íslandi til 18 ára aldurs samkvæmt 4. grein laga um íslenskan ríkisborgararétt númer 100/1952.

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun