Fara beint í efnið

Uppbyggingarsjóður EES

Leiðbeiningar vegna umsókna

Ekki er sótt um styrki hjá Rannís.

Hvert viðtökuríki setur fram og rekur sína áætlun. Það þýðir að formlega verða fyrirtæki og stofnanir í þessum löndum að vera í forsvari fyrir umsókn um styrk til stjórnvalda í sínu landi.

Íslenskir aðilar geta tekið þátt í verkefnum sem samstarfsaðilar í gegnum opin styrkjaköll sem eru auglýst í viðtökuríkjum sjóðsins á sviðum eins og rannsóknum, nýsköpun, menntun, menningu, staðbundinni þróun og grænum umskiptum. Tekið skal fram að kostnaður verkefnaaðila frá EES EFTA-ríkjum er greiddur í samræmi við þátt þeirra í verkefnum út frá verkefnasamingi.

Umsóknir eru lagðar fram í gegnum umsóknarkerfi viðkomandi viðtökuríkis eða í gegnum vef Uppbyggingarsjóðs EES þar sem opin köll eru auglýst.