Fara beint í efnið

Uppbyggingarsjóður EES styrkir samstarfsverkefni milli Íslands, Noregs og Liechtenstein og fimmtán viðtökuríkja í Evrópu. Markmið sjóðsins er að draga úr efnahagslegum og félagslegum mismun og efla tvíhliða samstarf.

Íslenskir aðilar geta tekið þátt í verkefnum sem samstarfsaðilar í gegnum opin styrkjaköll sem eru auglýst í viðtökuríkjum sjóðsins á sviðum eins og rannsóknum, nýsköpun, menntun, menningu, staðbundinni þróun og grænum umskiptum.

Styrkir úr Uppbyggingarsjóði EES eru veittir til verkefna sem unnin eru í samstarfi milli aðila í viðtökuríkjum og EES EFTA-ríkjunum. Umsóknir eru lagðar fram af aðilum í viðtökuríkjum en þátttaka íslenskra aðila er möguleg í samstarfsverkefnum.

Verkefnin eru valin í gegnum opin köll og falla undir mismunandi málefnasvið, svo sem rannsóknir og nýsköpun, menntun, menningu, samfélagsþróun og umhverfismál.

Smelltu hér til að horfa á upptöku frá kynningarfundi um nýja áætlun Uppbyggingasjóðs EES sem haldin var 17. apríl 2026.

Þátttökuríki Uppbyggingarsjóðs EES

Logo