Listaskólar
List hefur fylgt manninum frá upphafi og er einn af hornsteinum mannlegs samfélags.
Leiklistarnám
- Í Listaháskóla Íslands er boðið upp á fjögurra ára leiklistarnám á háskólastigi. Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði og annað er að finna á vef leiklistardeildar.
Leiklistardeild Listaháskóla Íslands - Námið er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Námslán á vef Lánasjóðs íslenskra námsmanna
Bandalag íslenskra leikfélaga
Borgarleikhúsið
Leikfélag Akureyrar
Sjálfstæðu leikhúsin
Þjóðleikhúsið
Tónlistar- og söngnám
- Tónlistar- og söngskólar á landinu eru ýmist sjálfstætt starfandi og reknir í samvinnu við sveitarfélög eða alfarið á vegum sveitarfélaganna. Skólunum er skipt niður í deildir.
- Mennta- og menningarmálaráðuneyti gefur út aðalnámskrá tónlistar- og söngskóla. Skólanámskrá er gefin út af hverjum skóla fyrir sig og á vefjum skólanna má finna frekari upplýsingar.
- Tónmenntakennsla og listnám í grunn- og framhaldsskólum er hluti af aðalnámskrá skólanna. Í flestum skólum á öllum skólastigum eru starfandi kórar og hljómsveitir. Nánari upplýsingar fást á vefjum skólanna.
- Misjafnt er á hvaða aldri nemendur hefja nám í tónlistarskóla en meirihluti hefur nám á grunnskólaaldri. Upplýsingar um aldurstakmörk, inntökuskilyrði, innritun og skólagjöld er að finna á vefjum sveitarfélaga og tónlistarskóla.
- Í tónlistarskólum er boðið upp á nám á grunnstigi, miðstigi, framhaldsskólastigi og háskólastigi. Frekari upplýsingar er að finna á vefjum skólanna.
- Tónlistarnám á framhaldsstigi metið til lokaprófs í nokkrum framhaldsskólum. Boðið er upp á tónlistarnám á háskólastigi í Listaháskóla Íslands. Nánari upplýsingar fást á vefjum skólanna.
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands - Tónlistarnám á háskólastigi er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Námslán á vef Lánasjóðs íslenskra námsmanna
Aðalnámskrá á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis
Skólahljómsveitir í Reykjavík
Sveitarfélög á landinu
Tónlistarskólar á landinu á musik.is
Tónlistarskólar á landinu á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis
Sjón- og myndlistarnám
- Myndlist, myndmennt og sjónlist eru hluti af aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla.
- Myndlistaskólar á landinu eru ýmist sjálfseignarstofnanir, einkareknir og með samning við sveitarfélög og ríki.
- Kennsla í myndlistaskólum er deildaskipt. Nemendur þurfa að uppfylla viss skilyrði til að geta stundað nám í sumum deildanna og fer það eftir því á hvaða skólastigi nám skal stundað. Upplýsingar um aldurstakmörk, inntökuskilyrði, innritun og skólagjöld er að finna á vefjum skólanna.
- Nokkrir framhaldsskólar bjóða upp á nám á listabrautum til lokaprófs.
Framhaldsskólar á landinu á menntagatt.is - Í Listaháskóla Íslands er boðið upp á myndlistarnám á háskólastigi.
Myndlistardeild Listaháskóla Íslands - Námið er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Námslán á vef Lánasjóðs íslenskra námsmanna
Myndlistarskóli Kópavogs
Myndlistaskólinn á Akureyri
Myndlistaskólinn í Reykjavík
Samband íslenskra myndlistarmanna
Upplýsingavefur um myndlist og myndhöfunda
Listdans
- Íslenskir listdansskólar eru einkareknir og hafa sumir gert þjónustusamninga við hið opinbera. Upplýsingar um aldurstakmörk, inntökuskilyrði, innritun og skólagjöld er að finna á vefjum skólanna
Listdansskólar - Í einum framhaldsskóla er boðið upp á nám á listdansbraut samkvæmt aðalnámskrá. Þeir nemendur 16 ára og eldri sem stunda framhaldsnám í listdansskóla geta fengið nám sitt metið á þeirri braut.
- Dansnám er hluti af aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla.
- Í Listaháskólanum er boðið upp á þriggja ára nám í samtímadansi.
Dansnám í leiklistardeild Listaháskóla Íslands
Vert að skoða
- Menntamál á vef stjórnarráðsins
- Aðalnámskrár á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis
- Bandalag íslenskra listamanna