Miðstöð sjúklingafræðslu á Landspítala
Vantar fræðsluefni fyrir sjúklinga á þinni einingu?
Svona gerir þú:
Fylgt er ákveðnu ferli við gerð fræðsluefnis fyrir sjúklinga og að standendur.Sjá: Gerð fræðsluefnis - ferli.
Mikilvægt er kynna sér gátlista um gerð fræðsluefnis fyrir sjúklinga og aðstandendur áður en hafist er handa við gerð eða ritun þess.
Sjá Gerð fræðsluefnis - ritun. Mælt er með að hafa samráð við ritstjórn sjúklingafræðslu áður en vinnan er hafin. Einfaldast er að senda tölvupóst: sjuklingafraedsla@landspitali.is
Allt efni er sent til ritstjórnar sem sér um yfirlestur og sendir til uppsetningar til grafísks hönnuðar Landspítala eins og við á.
Efni má miðla á margvíslegan máta svo sem með skriflegu fræðsluefni eða stuttum myndböndum. Ritstjórn gefur nánari upplýsingar og ráðgjöf um miðlun efnis.
Útgáfa fræðsluefnis á Landspítala
Fræðsluefni er vistað í gæðahandbók og er birt á ytri vef Landspítala eftir útgáfu þess. Endurskoða þarf efnið á 12-36 mánaða fresti.
Hægt er að senda sjúklingum fræðsluefni rafrænt í Heilsuveru úr Sögukerfi eða Heilsugátt eða í tölvupósti.
Útgefið fræðsluefni
Á vef Landspítala er að finna útgefið fræðsluefni sem Landspítali hefur gefið út.
Nýlega útgefið fræðsluefni
Fræðsluefni er stundum gefið út á myndböndum hér neðan er dæmi um nýlegt efni sem hefur verið gefið út:
