Byggja og breyta
Sækja verður um byggingarleyfi þegar reisa á hús, endurbyggja, byggja við eða breyta. Ekki má hefja framkvæmdir fyrr en leyfi liggur fyrir.
Byggingarleyfi
- Umsóknareyðublöð fyrir byggingarleyfi er að fá hjá byggingarfulltrúa viðkomandi sveitarfélags. Þau má líka víða nálgast á vefjum sveitarfélaganna.
Spurningar og svör um byggingamál á vef Skipulagsstofnunar
- Sveitastjórnir veita byggingarleyfi að fengnu áliti byggingarnefnda og -fulltrúa sem hafa eftirlit með að öllum ákvæðum sé fylgt við byggingaframkvæmdir.
- Dæmi um framkvæmdir sem verður að sækja um leyfi fyrir eru:
- Breytingar á notkun húsa.
- Sólpallar, heitir pottar og móttökudiskar.
- Girðingar yfir vissri hæð og steyptir skjólveggir.
- Ef fyrirhugaðar breytingar á notkun húsnæðis eða stækkun þess stangast á við gildandi deiliskipulag þarf skipulagsnefnd sveitarfélags að fjalla um umsóknina og getur það lengt afgreiðslu hennar umtalsvert.
- Fyrir byggingarleyfi þarf að greiða byggingarleyfisgjald. Ýmis önnur gjöld eru lögð á vegna byggingaframkvæmda, svo sem gatnagerðargjöld og gjöld fyrir úttektir og vottorð.
- Sé ágreiningur um afgreiðslu byggingarleyfisumsókna má skjóta málinu til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Annað
- Lóðum til nýbygginga er úthlutað af sveitarfélögum sem hvert um sig setja sér reglur um lóðaveitingar.
- Sækja verður um brunabótamat í síðasta lagi fjórum vikum eftir að nýtt húsnæði er tekið í notkun. Fyrsta mat er gjaldfrítt.
Beiðni um brunabótamat - Hægt er að sækja um styrki vegna endurbóta og viðhalds húsa með varðveislugildi. Þeir eru veittir af Húsfriðunarsjóði, fjárlaganefnd og sumum sveitarfélögum.
Byggingar á vef Mannvirkjastofnunar
Vert að skoða
- Byggingarsvæði í Reykjavík
- Fasteigna- og brunabótamat á Ísland.is
- Húsverndarstofa á vef Reykjavíkurborgar
- Um byggingarfulltrúa og listi á vef Mannvirkjastofnunar
- Um skipulagsfulltrúa og listi á vef Skipulagsstofnunar
- Um skipulagsráðgjafa og listi á vef Skipulagsstofnunar
- Upplýsingar um framkvæmdaleyfi á vef Skipulagsstofnunar
- Húsnæðismál á vef stjórnarráðsins