Fara beint í efnið

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða

Loftslags- og orkusjóður auglýsir 150 milljónir króna í styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla á Íslandi.

Veiting styrkja fer fram samkvæmt reglugerð nr. 1566/2024 um Loftslags- og orkusjóð.

Opnað verður fyrir umsóknir þann 1. maí næstkomandi.

Umsóknarfrestur er til 1. júní 2026.

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða

Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla á Íslandi. Markmið átaksins er að tryggja sterkt og þétt net hraðhleðslustöðva um land allt og styðja þannig við orkuskipti í samgöngum og loftslagsmarkmið stjórnvalda.

Markmið

Styrkjunum er ætlað að tryggja lágmarksaðgang að hleðsluinnviðum um allt land. Sérstök áhersla er lögð á að í hverjum þéttbýlisstað á Íslandi sé aðgangur að hraðhleðslustöð og að hvergi á þjóðvegakerfi landsins verði lengra en 100 km á milli hraðhleðslustöðva.

Auglýst er eftir verkefnum:

  • Í öllum þéttbýlisstöðum þar sem ekki eru hraðhleðslustöðvar nú þegar eða hleðsluinnviðir eru ófullnægjandi (verkefnaflokkur A).

  • Á stöðum á þjóðvegakerfinu þar sem lengst er á milli hraðhleðslustöðva (verkefnaflokkur B).

Heildarfjárhæð til úthlutunar

Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 150 m.kr.

Styrkhlutfall og hámark

  • Styrkur nemur allt að 50% af styrkhæfum kostnaði án virðisaukaskatts.

  • Hámarksstyrkur er 20 m.kr. á hvert verkefni.

  • Styrkur greiðist í einni greiðslu eftir að verkefni er lokið og lokaskýrsla hefur verið samþykkt.

Hverjir geta sótt um

Umsækjendur skulu vera lögaðilar með þekkingu og reynslu af uppsetningu og/eða rekstri hraðhleðslustöðva. Einstaklingar og lögaðilar í ótengdum rekstri (svo sem gististaðir og veitingastaðir) eru ekki styrkhæfir. Sjá nánar í handbók.

Helstu skilyrði verkefna

  • Hleðslustöðvar á þjóðvegakerfinu skulu hafa að lágmarki 300 kW afl á allt að tveimur tenglum samtímis en 200 kW vegna hraðhleðslustöðva í þéttbýli. Þær skulu jafnframt styðja hleðslu 800 V bifreiða.

  • Stöðvar skulu taka við snertilausum greiðslum með greiðslukortum.

  • Stöðvar skulu vera aðgengilegar öllum allan sólarhringinn. Aðgengi hreyfihamlaðra skal tryggt.

  • Styrkþegi skuldbindur sig til að reka stöðina í að lágmarki 5 ár frá gangsetningu.

  • Sjá frekari skilyrði í handbók.

Umsóknarfrestur

Opnað verður fyrir umsóknir 1. maí 2026 og lokafrestur er 1. júní kl. 15:00. Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarkerfi á orkusjodur.is.

Nánari upplýsingar

Nánari lýsing á umsóknarferli, kröfum, fylgigögnum og matsferli er í handbók sem fylgir þessari auglýsingu. Spurningum má beina á orkusjodur@uos.is. Svör við almennum fyrirspurnum verða birt í „Spurt og svarað" á vef sjóðsins.