Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Byggingarmál, Mannvirki, Menningarminjar
Undirritunardagur
26. október 2026
Útgáfudagur
2. nóvember 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 98/2026
26. október 2026
LÖG
um breytingu á lögum um menningarminjar og lögum um mannvirki (álit Minjastofnunar Íslands vegna húsa og mannvirkja).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
I. KAFLIBreyting á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 30. gr. laganna:
- Í stað orðanna „sem ekki njóta friðunar en byggð voru 1940 eða fyrr, svo og forráðamönnum kirkna sem reistar voru 1940 eða fyrr, er skylt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands með minnst sex vikna fyrirvara“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: svo og forráðamönnum kirkna, sem ekki njóta friðunar, er heimilt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands.
- 2. mgr. orðast svo:
Byggingarfulltrúum er heimilt að gera að skilyrði að eigendur húsa og mannvirkja, svo og forráðamenn kirkna, leiti eftir áliti Minjastofnunar Íslands áður en leyfi er veitt til framkvæmda. - 3. mgr. orðast svo:
Hafi álits Minjastofnunar Íslands verið leitað á grundvelli 1. mgr. eða byggingarfulltrúi gert kröfu þar um skv. 2. mgr. skal það liggja fyrir áður en byggingarleyfi er veitt vegna viðkomandi framkvæmdar. Við afgreiðslu umsóknar um byggingarleyfi skal taka tillit til skilyrða sem Minjastofnun leggur til í áliti sínu. Sama á við um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt skipulagslögum.
2. gr.
Tilvísunin „1. mgr. 30. gr.“ í 1. mgr. 56. gr. laganna fellur brott.
II. KAFLIBreyting á lögum um mannvirki, nr. 160/2010.
3. gr.
6. mgr. 13. gr. laganna orðast svo:
Áður en gefið er út byggingarleyfi fyrir mannvirki skal gætt, eftir því sem við á, ákvæða IV., VI. og VII. kafla laga um menningarminjar, nr. 80/2012.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 26. október 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Jóhann Páll Jóhannsson.
A deild — Útgáfudagur: 2. nóvember 2026