Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sjávarútvegur, Byggðamál

Undirritunardagur

20. apríl 2026

Útgáfudagur

21. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 383/2026

20. apríl 2026

REGLUGERÐ

um úthlutun aflamarks í grásleppu til nýliða.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun aflamarks í grásleppu til skipa í eigu nýliða samkvæmt 7. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.

2. gr. Nýliði.

Nýliði samkvæmt reglugerð þessari telst sá aðili sem á skip, sem ekki hefur skráða aflahlutdeild og hefur ekki fengið úthlutað aflahlutdeild eða átti rétt á aflahlutdeild í grásleppu vegna fiskveiðiársins 2025/2026.

3. gr. Auglýsing og umsókn um aflamark í grásleppu.

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um aflamark í grásleppu fyrir skip í eigu nýliða á hverju fiskveiðiári.

Aflamark í grásleppu til úthlutunar til nýliða er miðað við það magn sem tilgreint er í reglugerð um veiðar í atvinnuskyni sem gildir fyrir viðkomandi fiskveiðiár og almanaksár, sbr. 1. gr. reglugerðar um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sem gildir fyrir viðkomandi fiskveiðiár og almanaksár.

Umsókn skal skila á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í umsókn um aflamark í grásleppu til nýliða skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:

  1. Nafn, kennitala og lögheimili umsækjanda. 
  2. Fiskiskip sem óskað er að aflamark verði skráð á.
  3. Á hvaða staðbundna veiðisvæði fiskiskip muni stunda veiðar, sbr. 5. gr.

4. gr. Úthlutun aflamarks.

Aflamarki í grásleppu til nýliða skv. 7. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða skal Fiskistofa úthluta árlega til skipa í eigu nýliða skv. 2. gr.

Fiskistofa skal úthluta aflamarki í grásleppu til skips nýliða á grundvelli umsókna skv. 3. gr. Aflamark í grásleppu skal skiptast jafnt á milli nýliða. Hver nýliði getur að hámarki fengið 0,4% af aflamarki leyfilegs heildarafla í grásleppu á viðkomandi fiskveiðiári úthlutað á skip.

Því aflamarki sem ekki er úthlutað til nýliða á fiskveiðiári er heimilt að skipta í samræmi við fyrirmæli 6. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, sbr. 3. málsl. 7. mgr. 8. gr. sömu laga.

5. gr. Veiðisvæði.

Staðbundin veiðisvæði grásleppu eru:

  1. Suðurland – Faxaflói, frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum 64°23,90 N 014°28,00 V að línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V.
  2. Breiðafjörður – Vestfirðir, svæði frá línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V að línu réttvísandi norður frá Horni 66°27,40 N 022°24,30 V.
  3. Húnaflói, frá línu réttvísandi norður frá Horni 66°27,40 N 022°24,30 V að línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V.
  4. Norðurland, frá línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V að línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi 66°22,70 N 014°31,90 V.
  5. Austurland, frá línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi 66°22,70 N 014°31,90 V að línu réttvísandi austur frá Hvítingum 64°23,90 N 014°28,00 V.

Um lokanir eða takmarkanir á veiðisvæðum fer eftir 7. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997.

6. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett skv. 7. gr. a og 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um úthlutun aflamarks í grásleppu til nýliða, nr. 1441/2024.

Innviðaráðuneytinu, 20. apríl 2026.

Eyjólfur Ármannsson.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

B deild — Útgáfudagur: 21. apríl 2026

Tengd mál