Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Umhverfismál, Loftslagsmál

Undirritunardagur

28. maí 2026

Útgáfudagur

29. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 593/2026

28. maí 2026

REGLUGERÐ

um (12.) breytingu á reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir.

1. gr.

Við 2. mgr. 31. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1321 frá 8. maí 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2067 að því er varðar sannprófun á gögnum og faggildingu sannprófenda, sem vísað er til í tölulið 21apk í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 319/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 706-739.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2493 frá 23. september 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2066 að því er varðar uppfærslu á vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB, sem vísað er til í tölulið 21apj í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 183/2025 frá 11. júlí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63 frá 9. október 2025, bls. 250-302.

2. gr.

Við 32. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2620 frá 30. júlí 2024 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB að því er varðar kröfur er varða að líta svo á að gróðurhúsalofttegundir séu orðnar varanlega bundnar með efnatengjum í vöru, sem vísað er til í tölulið 21alz í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 183/2025 frá 11. júlí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59 frá 25. september 2025, bls. 439-443.

3. gr.

Við 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3214 frá 16. október 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 að því er varðar reglur um vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda frá grunnsævisskipum og núllmat á sjálfbæru eldsneyti, sem vísað er til í tölulið 21aw í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 55/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 546-548.

4. gr.

Við 2. mgr. 33. gr. a reglugerðarinnar bætast þrír nýir stafliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2850 frá 11. nóvember 2024 um skrána yfir ríki sem litið er svo á að beiti kerfinu til kolefnisjöfnunar og -samdráttar í alþjóðaflugi að því er varðar tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB vegna losunar 2024, sem vísað er til í tölulið 21alua í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 534-538.
  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1500 frá 23. júlí 2025 um skrána yfir ríki sem litið er svo á að beiti kerfinu til kolefnisjöfnunar og -samdráttar í alþjóðaflugi að því er varðar tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB vegna losunar 2025, sem vísað er til í tölulið 21alub í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 539-543.
  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/927 frá 20. maí 2025 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB að því er varðar ráðstafanir sem Alþjóðaflugmálastofnunin samþykkti vegna vöktunar, skýrslugjafar og sannprófunar á losun frá flugi í þeim tilgangi að koma hnattrænni markaðstengdri ráðstöfun til framkvæmda og um niðurfellingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1603, sem vísað er til í tölulið 21apm í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 105/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 445-460.

5. gr.

1. málsl. 34. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. og 2. mgr. 5. gr., 6. mgr. 9. gr., 7. mgr. 10. gr., 4. mgr. 11. gr., 2. og 6. mgr. 12. gr., 22. gr., 23. gr., 7. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II og ákvæðis til bráðabirgða III laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirtöldum gerðum:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1321 frá 8. maí 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2067 að því er varðar sannprófun á gögnum og faggildingu sannprófenda.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2493 frá 23. september 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2066 að því er varðar uppfærslu á vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2620 frá 30. júlí 2024 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB að því er varðar kröfur er varða að líta svo á að gróðurhúsalofttegundir séu orðnar varanlega bundnar með efnatengjum í vöru.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3214 frá 16. október 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 að því er varðar reglur um vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda frá grunnsævisskipum og núllmat á sjálfbæru eldsneyti.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2850 frá 11. nóvember 2024 um skrána yfir ríki sem litið er svo á að beiti kerfinu til kolefnisjöfnunar og -samdráttar í alþjóðaflugi að því er varðar tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB vegna losunar 2024.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1500 frá 23. júlí 2025 um skrána yfir ríki sem litið er svo á að beiti kerfinu til kolefnisjöfnunar og -samdráttar í alþjóðaflugi að því er varðar tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB vegna losunar 2025.
  7. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/927 frá 20. maí 2025 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB að því er varðar ráðstafanir sem Alþjóðaflugmálastofnunin samþykkti vegna vöktunar, skýrslugjafar og sannprófunar á losun frá flugi í þeim tilgangi að koma hnattrænni markaðstengdri ráðstöfun til framkvæmda og um niðurfellingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1603.

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 4. mgr. 5. gr., 4. mgr. 11. gr. og 23. gr. laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023, öðlast þegar gildi, þó að undanskildum þeim atriðum er varða viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir byggingar, vegasamgöngur og viðbótargeira. Einnig er undanskilið atriði sem varðar tilbúið lágkolefnaeldsneyti.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 28. maí 2026.

F. h. r.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Magnús Örn Agnesar Sigurðsson.

B deild — Útgáfudagur: 29. maí 2026

Tengd mál