Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Rangárþing ytra
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
21. apríl 2026
Útgáfudagur
7. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 458/2026
21. apríl 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.
Hallstún, spilda, L203254, deiliskipulag.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 14. janúar 2026 tillögu að deiliskipulagi fyrir Hallstún, spildu. Fyrirhuguð er uppbygging ferðaþjónustu fyrir allt að 20 gesti. Innan hvorrar lóðar er heimilt að byggja 6 gestahús, allt að 30 m² hvert að stærð ásamt tveimur þjónustu- og gestahúsum, allt að 100 m² að stærð. Einnig er heimilt að byggja allt að 170 m² skemmu/geymslu. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hellu, 21. apríl 2026.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 7. maí 2026