Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Heilbrigðiseftirlit, Umhverfismál, Eiturefni - spilliefni
Undirritunardagur
27. maí 2026
Útgáfudagur
29. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 589/2026
27. maí 2026
REGLUGERÐ
um (25.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast sex nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/660 frá 1. apríl 2025 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar fjölhringa arómatísk vetniskolefni í leirdúfum, sem vísað er til í tl. 12zc í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið líkt og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 274/2025, 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 500-504.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1090 frá 2. júní 2025 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar N,N-dímetýlasetamíð (DMAC) og 1-etýlpýrrólídín-2-ón (NEP), sem vísað er til í tl. 12zc í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið líkt og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 275/2025, 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 505-509.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2067 frá 15. október 2025 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 340/2008 um þóknanir og gjöld sem greiða ber til Efnastofnunar Evrópu samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tl. 12zf í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið líkt og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 26/2026, 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 457-474.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1731 frá 8. ágúst 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar efni sem eru krabbameinsvaldandi eða kímfrumustökkbreytivaldar eða efni sem hafa eiturhrif á æxlun sem sæta takmörkunum, sem vísað er til í tl. 12zc í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið líkt og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2026, 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 216-219.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1988 frá 2. október 2025 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar per- og pólýflúoróalkýlefni í slökkvifroðu, sem vísað er til í tl. 12zc í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið líkt og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 78/2026, 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 220-230.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2573 frá 18. desember 2025 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 440/2008 að því er varðar prófunaraðferðir til að laga þær að tækniframförum, sem vísað er til í tl. 12zza í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið líkt og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2026, 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 231-236.
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/660 frá 1. apríl 2025 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar fjölhringa arómatísk vetniskolefni í leirdúfum.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1090 frá 2. júní 2025 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar N,N-dímetýlasetamíð (DMAC) og 1-etýlpýrrólídín-2-ón (NEP).
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2067 frá 15. október 2025 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 340/2008 um þóknanir og gjöld sem greiða ber til Efnastofnunar Evrópu samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH).
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1731 frá 8. ágúst 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar efni sem eru krabbameinsvaldandi eða kímfrumustökkbreytivaldar eða efni sem hafa eiturhrif á æxlun sem sæta takmörkunum.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1988 frá 2. október 2025 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar per- og pólýflúoróalkýlefni í slökkvifroðu.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2573 frá 18. desember 2025 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 440/2008 að því er varðar prófunaraðferðir til að laga þær að tækniframförum.
3. gr.
Í stað orðsins „Umhverfisstofnun“ í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfis- og orkustofnun.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. maí 2026.
F. h.r .
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.
Hugi Ólafsson.
B deild — Útgáfudagur: 29. maí 2026