Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
20. maí 2026
Útgáfudagur
4. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 626/2026
20. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna frístundabyggðar F19.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 20. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. apríl 2026.
Breytingin felur í sér að landnotkun Haga við Selfjall 2 er breytt úr frístundabyggð F19 í landbúnaðarsvæði. Eftir breytinguna taka almenn ákvæði aðalskipulags fyrir landbúnaðarsvæði til svæðisins, þ.m.t. ákvæði um fasta búsetu og atvinnustarfsemi. Svæðið er um 2 ha að stærð.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 20. maí 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 4. júní 2026