Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Kópavogur

Undirritunardagur

5. maí 2026

Útgáfudagur

20. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 506/2026

5. maí 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Kópavogsbæjar vegna rammahluta Kársness.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 5. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 sem samþykkt var í bæjarstjórn 10. mars 2026.

Í breytingunni felst að á 57,2 ha svæði sem skilgreint er sem þróunarsvæði (ÞR-1) er sett fram stefna um framtíðar uppbyggingu á svæði sem skiptist í eftirtalda landnotkunarreiti: verslun og þjónustu, athafnasvæði, íbúðarsvæði og hafnarsvæði. Ekki er gerð breyting á einstökum landnotkunarreitum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 5. maí 2026.

Guðrún Lára Sveinsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 20. maí 2026

Tengd mál