Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Ölfus

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Ölfus

Undirritunardagur

22. maí 2026

Útgáfudagur

27. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 559/2026

22. maí 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Hrókabólsvegur 1 – aukið nýtingarhlutfall – deiliskipulagsbreyting.

Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 26. febrúar 2026, breytingu á deiliskipulagi Hjarðarbóls – lóð 1. Breytingin varðar lóðina Hrókabólsveg 1 og felur í sér stækkun byggingarreits og aukningu nýtingarhlutfalls svo það verði í samræmi við núgildandi aðalskipulag Sveitarfélagsins Ölfuss.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Hvoll – nýtt deiliskipulag.

Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 30. október 2025, nýtt deiliskipulag fyrir jörðina Hvoll. Skipulagið felur í sér að landinu er skipt í tvennt og á öðrum hluta þess er skipulagt íbúðarhús, skemma og þrjú gestahús.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Mói – stækkun lóðar vegna bílastæða – óveruleg breyting deiliskipulags.

Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 26. mars 2026, óverulega breytingu á deiliskipulagi Móahverfis. Í breytingunni felst að ein lóð er stækkuð til að hægt sé að koma fyrir 2 bílastæðum til viðbótar svo kröfur um bílastæðafjölda séu uppfylltar.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Þorlákshöfn, 22. maí 2026.

Sigurður Steinar Ásgeirsson, sviðsstjóri skipulags- og lögfræðisviðs.

B deild — Útgáfudagur: 27. maí 2026

Tengd mál