Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Árnessýsla

Undirritunardagur

7. maí 2026

Útgáfudagur

26. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 548/2026

7. maí 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna verslunar- og þjónustusvæðis á Bergsstöðum, lóð 2.

Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 7. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 1. apríl 2026.

Í breytingunni felst að um 1,2 ha lóð Bergsstaða, lóðar 2, breytist úr frístundabyggð F84 í verslunar- og þjónustusvæði VÞ52. Á svæðinu verður heimild fyrir gistingu í flokki I og II, með allt að fjórum gistirúmum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 7. maí 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 26. maí 2026

Tengd mál