Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
25. mars 2026
Útgáfudagur
13. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 357/2026
25. mars 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulagsmál í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
Deiliskipulagsbreyting, Lækjarbrekka 45, L230892, frístundasvæði Syðri-Brúar, L168277, aukið byggingarmagn og nýtingarhlutfall.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til frístundasvæðis í landi Syðri-Brúar. Í breytingunni felst að heimilt verði að byggja eitt frístundahús að hámarki 180 fm að stærð, í stað 150 fm, að undanskildum yfirbyggðum veröndum, og eitt smáhýsi/geymslu að hámarki 40 fm að stærð, í stað 30 fm, en nýtingarhlutfall skuli ekki fara yfir 0,05. Umsótt breyting á nýtingarhlutfalli frístundalóða innan Syðri-Brúar er í samræmi við aðalskipulagsbreytingu er varðar aukningu á nýtingarhlutfalli innan frístundasvæða sem einnig er til afgreiðslu sveitarstjórnar, eftir auglýsingu og afgreiðslu Skipulagsstofnunar.
Samþykkt í sveitarstjórn 3. september 2025.
Deiliskipulagsbreyting, Kerhraun B 136, L208922, og B137, L208923, breytt mörk lóða.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Kerhrauns B 136, L208922, og Kerhrauns B 137, L208923. Í breytingunni felst að mörkum lóðanna er breytt. Lóðin Kerhraun 136 minnkar í 4.497 fermetra úr 6.368 fermetrum og lóðin Kerhraun 137 stækkar í 7.500 fermetra úr 5.629 fermetrum. Byggingarreitum lóðanna er breytt vegna breyttra lóðarmarka.
Samþykkt í sveitarstjórn 4. febrúar 2026.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 25. mars 2026.
F.h. skipulagsfulltrúa Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Nanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 13. apríl 2026