Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Skaftárhreppur

Undirritunardagur

22. júní 2026

Útgáfudagur

6. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 764/2026

22. júní 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps vegna frístundabyggðar að Botnum.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 22. júní 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps 2023-2043, sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. janúar 2026.

Með breytingunni verður heimilað byggingarmagn innan frístundabyggðar F7 að Botnum allt að 2.610 m² í stað allt að 500 m² samkvæmt gildandi aðalskipulagi.

Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 22. júní 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 6. júlí 2026

Tengd mál