Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hafnarfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
24. apríl 2026
Útgáfudagur
11. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 468/2026
24. apríl 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.
Breyting á deiliskipulagi Snókalanda við Bláfjallaveg.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 22. apríl 2026 breytingu á deiliskipulagi fyrir Snókalönd, ferðamannasvæði fyrir stjörnu- og norðurljósaskoðun við Bláfjallaveg.
Breytingin gerir ráð fyrir nýjum byggingarreit fyrir allt að 18 kúluhús en hvert hús er allt að 18 fm að stærð ásamt 10 fm viðbyggingu með salernisaðstöðu. Á núverandi byggingarreit er einnig gert ráð fyrir 2 þjónustubyggingum til viðbótar. Að öðru leyti gildir deiliskipulagið frá 13. mars 2023.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
Hafnarfirði, 24. apríl 2026.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Berglind Guðmundsdóttir landlagsarkitekt.
B deild — Útgáfudagur: 11. maí 2026