Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hrunamannahreppur
Undirritunardagur
8. júní 2026
Útgáfudagur
23. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 709/2026
8. júní 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps vegna stefnu um íbúðarbyggð í dreifbýli og nýja íbúðarbyggð í Birkibyggð.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 8. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. apríl 2026.
Í breytingunni felst að sett eru almenn ákvæði sem heimila skilgreiningu á íbúðarbyggð í dreifbýli sveitarfélagsins. Auk þess er skilgreind um 8,5 ha íbúðarbyggð ÍB12 í Birkibyggð við Flúðir fyrir 12 íbúðarlóðir. Frístundabyggð F9, Kjóabyggð/Álftabyggð, minnkar sem því nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 8. júní 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 23. júní 2026