Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Eyjafjarðarsveit
Málaflokkur
Skipulagsmál, Eyjafjarðarsýsla
Undirritunardagur
30. mars 2026
Útgáfudagur
16. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 373/2026
30. mars 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Eyjafjarðarsveit.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar á fundi sínum 26. mars 2026 eftirfarandi deiliskipulagsbreytingu:
Deiliskipulag Torfa, svínabús (Sölvastaðir).
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Torfa, svínabús (núverandi heiti er Sölvastaðir, L232711). Í breytingunni felst að bætt er við 1.971 m² lóð fyrir starfsmannahús sunnan lóðar svínabús. Lóð og starfsmannahús tilheyra starfsemi svínabúsins og skal kvöð þess efnis þinglýst á lóðina sjálfa við stofnun hennar. Innan lóðar er skilgreindur byggingarreitur (D) og innan hans er heimilt að byggja starfsmannahús með grunnfleti allt að 170 m². Byggingin skal vera með mænisþaki, með vegghæð að hámarki 3,0 m og mænishæð að hámarki 5,0 m yfir gólfkóta aðalhæðar. Gert er ráð fyrir hreinsivirki fráveitu austan við lóðina. Staðsetning hreinsivirkis á skipulagsuppdrætti er ekki bindandi. Fyrir utan þessar breytingar gildir áfram greinargerð deiliskipulagsins sem öðlaðist gildi 25. nóvember 2019.
Ofangreind tillaga hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
F.h. Eyjafjarðarsveitar, 30. mars 2026.
Arnar Ólafsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 16. apríl 2026