Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Árnessýsla

Undirritunardagur

14. apríl 2026

Útgáfudagur

29. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 412/2026

14. apríl 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps vegna skógræktar og frístundabyggðar í landi Hrafnabjarga.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun staðfesti 14. apríl 2026 breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 21. ágúst 2025.

Í breytingunni felst breytt afmörkun frístundabyggðar F20, og stækkun á skógræktarsvæðum SL7 og SL8, landbúnaðarland minnkar til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 14. apríl 2026.

Guðrún Lára Sveinsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 29. apríl 2026

Tengd mál