Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Dalvíkurbyggð
Undirritunardagur
18. júní 2026
Útgáfudagur
2. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 746/2026
18. júní 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna stækkunar íbúðarsvæðis á Árskógssandi.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 18. júní 2026 breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. mars 2026.
Í breytingunni felst að íbúðarbyggð 706-Íb stækkar úr 1,2 ha í 4,9 ha og samhliða minnkar opið svæði 702-Ó og íbúðarbyggð 705-Íb. Þá stækkar íbúðarbyggð 707-Íb úr 2,7 ha í 4,1 ha og þéttbýlismörk stækka og færast að Þorvaldsdalsá.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 18. júní 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 2. júlí 2026