Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg

Undirritunardagur

4. maí 2026

Útgáfudagur

19. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 498/2026

4. maí 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar vegna verslunar- og þjónustusvæðis við Fossnes og Mýrar.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 4. maí 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036, sem samþykkt var í bæjarstjórn 4. febrúar 2026.

Breytingin tekur til rúmlega 3 ha stækkunar á verslunar- og þjónustusvæði VÞ4 við Fossnes og Mýrar til að skapa frekara svigrúm fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi. Opið svæði OP1 minnkar til samræmis.

Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 4. maí 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 19. maí 2026

Tengd mál