Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húnabyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Húnavatnssýslur
Undirritunardagur
14. apríl 2026
Útgáfudagur
29. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 418/2026
14. apríl 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulagi í Húnabyggð.
Deiliskipulag Svínvetningabrautar, viðskipta- og þjónustusvæði.
Sveitarstjórn Húnabyggðar samþykkti 10. mars 2026 nýtt deiliskipulag við Svínvetningabraut fyrir viðskipta- og þjónustusvæði. Skipulagið varðar afmörkun lóðar og byggingarreita vegna áforma um uppbyggingu tengda verslun og þjónustu, þ.m.t. fjölorkustöðvar. Heildarbyggingarmagn á reitum A og B er 3.150 m² á 1-2 hæðum, að hámarki 8 metra há. Heimilað er að reisa þrjú upplýst auglýsingaskilti innan lóðar að hámarki 8 metra há. Skilgreind er aðkoma að svæðinu frá þjóðvegi og Svínvetningabraut.
Við gildistöku þessa nýja deiliskipulags fellur úr gildi deiliskipulag Undraveraldar við Blöndubakka frá 2006.
Málsmeðferð var í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Húnabyggð, 14. apríl 2026.
Börkur Þór Ottósson, skipulags- og byggingafulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 29. apríl 2026