Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Árnessýsla

Undirritunardagur

21. apríl 2026

Útgáfudagur

22. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 395/2026

21. apríl 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hafa sveitarstjórnir Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt að fella úr gildi eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Heiðarbær við Þingvallavatn, frístundabyggð.

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir hér með að fella úr gildi auglýsingu nr. 1593/2025  um deiliskipulag í Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi, er varðar frístundabyggð í landi Heiðarbæjar, Þingvallasveit, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 6. janúar 2026, vegna formgalla á málsmeðferð. Athugasemdir Skipulagsstofnunar verða teknar fyrir á næsta fundi sveitarstjórnar.

Samþykkt var að fella auglýsinguna úr gildi í sveitarstjórn Bláskógabyggðar 1. apríl 2026 og sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps 13. apríl 2026.

Laugarvatni, 21. apríl 2026.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Sigríður Kristjánsdóttir skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 22. apríl 2026

Tengd mál