Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Heilbrigðiseftirlit, Umhverfismál, Eiturefni - spilliefni
Undirritunardagur
27. maí 2026
Útgáfudagur
29. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 592/2026
27. maí 2026
REGLUGERÐ
um (9.) breytingu á reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni.
1. gr.
Stafliðir 1. gr. reglugerðarinnar verða töluliðir, merktir með viðeigandi tölum.
2. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist fjórir nýir töluliðir, 26-29, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1482 frá 24. júlí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar þrávirku lífrænu mengunarefnin tetrabrómódífenýletra, pentabrómódífenýletra, hexabrómódífenýletra, heptabrómódífenýletra og dekabrómódífenýletra, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2026, þann 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 453-456.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/843 frá 5. maí 2025 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar UV-328, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 75/2026, þann 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 202-206.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1399 frá 5. maí 2025 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar perflúoróoktansýru (PFOA), sölt hennar og skyld efnasambönd, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 75/2026, þann 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 207-210.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1930 frá 15. maí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar Dechlorane Plus, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 76/2026, þann 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 211-215.
3. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum gerðum:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1482 frá 24. júlí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar þrávirku lífrænu mengunarefnin tetrabrómódífenýletra, pentabrómódífenýletra, hexabrómódífenýletra, heptabrómódífenýletra og dekabrómódífenýletra.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/843 frá 5. maí 2025 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar UV-328.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1399 frá 5. maí 2025 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar perflúoróoktansýru (PFOA), sölt hennar og skyld efnasambönd.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1930 frá 15. maí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar Dechlorane Plus.
4. gr.
Í stað orðsins „Umhverfisstofnun“ í 2. gr. reglugerðarinnar og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfis- og orkustofnun.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013, og 43. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu 27. maí 2026.
F.h.r.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir
Hugi Ólafsson
B deild — Útgáfudagur: 29. maí 2026