Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Ölfus

Undirritunardagur

22. maí 2026

Útgáfudagur

8. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 640/2026

22. maí 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna útvíkkunar þéttbýlismarka Þorlákshafnar.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 22. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 27. nóvember 2025.

Í breytingunni felst útvíkkun þéttbýlismarka Þorlákshafnar þannig að iðnaðarsvæðin á Víkursandi (I4 og I5), norðan Suðurstrandarvegar, og iðnaðarsvæði fyrir sunnan Suðurstrandarveg (I3) verði hluti af þéttbýlinu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 22. maí 2026.

Guðrún Lára Sveinsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 8. júní 2026

Tengd mál