Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Rangárþing ytra

Málaflokkur

Skipulagsmál, Rangárvallasýsla

Undirritunardagur

15. apríl 2026

Útgáfudagur

30. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 428/2026

15. apríl 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.

Hjartaland, áður Sólstaður, breyting á deiliskipulagi.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 11. mars 2026 tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Hjartaland. Gerð er breyting á deiliskipulagi svæðisins sem tekur til Sólstaðar (L227520) og Stóru-Skóga 2A (L234474). Byggingarreit B1 á Sólstöðum er breytt ásamt skilmálum innan hans þar sem heimilt er að stækka íbúðarhúsið í 250 m² og reisa annað íbúðarhús allt að 250 m² með innbyggðum bílskúr og allt að 250 m² gróðurhús. Heildarbyggingarmagn B1 verður 750 m². Tveimur nýjum byggingarreitum, G1 og Ú1, er bætt við ásamt skilmálum. Á G1 er heimilt að reisa allt að 5 gestahús, húsin verða misstór og á stærðarbilinu 40-80 m², þar sem leyfilegt er að hafa gistingu í flokki II, fyrir allt að 10 gesti. Heildarbyggingarmagn byggingarreits G1 verður 300 m². Á byggingarreit Ú1 er heimilt að reisa fjárhús, hesthús og áhaldageymslu, samtals allt að 500 m². Heimilt er að reisa 3 gróðurhús, samtals allt að 1.000 m². Heildarbyggingarmagn Ú1 verður 1.500 m². Aðkoman að svæðinu er af Árbæjarvegi. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Hellu, 15. apríl 2026.

F.h. Rangárþings ytra,

Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 30. apríl 2026

Tengd mál