Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
4. maí 2026
Útgáfudagur
5. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 435/2026
4. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna Skálabrekku og Heiðarbæjar.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 4. maí 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027, sem samþykkt var í sveitarstjórn 4. febrúar 2026.
Í breytingunni felst uppfærsla á lýsingu fyrir frístundasvæði F10 að Skálabrekku og Heiðarbæ. Í stað þess að gert sé ráð fyrir 21 lóð er gert ráð fyrir 79 lóðum.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 4. maí 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 5. maí 2026