Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Rangárþing ytra

Málaflokkur

Skipulagsmál, Rangárvallasýsla

Undirritunardagur

22. apríl 2026

Útgáfudagur

8. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 466/2026

22. apríl 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.

Norður-Nýibær, deiliskipulag.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti  11. mars 2026 tillögu að deiliskipulagi fyrir nýtt íbúðarhverfi í Norður-Nýjabæ. Heildarstærð svæðis er um 25 ha og hluti þess verður skilgreindur sem íbúðarbyggð. Fyrirhugað er að hluti íbúðarlóða verði 1,1 ha að jafnaði og að heimilt verði að reisa íbúðarhús og bílskúr auk gestahúsa til útleigu allt árið um kring fyrir ferðamenn. Heimild yrði til lítilsháttar reksturs innan svæðis að auki á sérlóð næst aðkomu inn á svæðið. Gert er ráð fyrir aðkomu að norðanverðu inn á spilduna af Þykkvabæjarvegi. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Hellu, 22. apríl 2026.

F.h. Rangárþings ytra,

Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 8. maí 2026

Tengd mál