Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Húnavatnssýslur
Undirritunardagur
28. maí 2026
Útgáfudagur
11. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 662/2026
28. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra vegna verslunar- og þjónustusvæðis að Víðihlíð í Víðigerði.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 28. maí 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. júní 2025.
Í breytingunni felst skilgreining á 2,5 ha verslunar- og þjónustusvæði VÞ21 að Víðihlíð í Víðigerði vegna áforma um uppbyggingu allt að 15 kúluhúsa til útleigu með allt að 30 gistirúmum. Landbúnaðarsvæði minnkar sem breytingunni nemur.
Málsmeðferð var venga óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 28. maí 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 11. júní 2026