Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárþing ytra
Undirritunardagur
15. júní 2026
Útgáfudagur
30. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 732/2026
15. júní 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna landbúnaðarsvæðis í landi Haga II og Teigsholts.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 15. júní 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. janúar 2026.
Í breytingunni felst að tveimur lóðum í frístundabyggðinni F18 er breytt í landbúnaðarsvæði. F18 minnkar við það um 2,3 ha og fækkar lóðum úr 70 í 68.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 15. júní 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 30. júní 2026