Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Árnessýsla

Undirritunardagur

28. apríl 2026

Útgáfudagur

29. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 417/2026

28. apríl 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps, samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulag, Heiðarbær við Þingvallavatn, frístundabyggð.

Um er að ræða nýtt deiliskipulag frístundabyggðar Heiðarbæjar við Þingvallavatn. Markmið deiliskipulagsins er að hafa til staðar deiliskipulag sem gefur heildarmynd af svæðinu þar sem lóðarmörk, aðgengi og gönguleiðir eru skýrar. Jafnframt að fylgja eftir stefnu Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps um að til skuli vera deiliskipulag fyrir eldri frístundasvæði. Með deiliskipulagsgerðinni er unnið að því að samþætta lóðamörk, auka skilvirkni við umsýslu á lóðum ásamt því að ramma inn svæðið og nýtingu þess í heild og einstaka þætti þess s.s. innviði, náttúruvernd og aðgengi. Hættumat vegna ofanflóða hefur verið unnið fyrir tillöguna auk þess sem fyrir liggur höfnun á undanþágu vegna skilgreiningar byggingarreita frá Þingvallavatni og Grafningsvegi-Efri. Athugasemdir bárust frá Skipulagsstofnun og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.

Samþykkt í sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps 22. apríl 2026.

Samþykkt í sveitarstjórn Bláskógabyggðar 21. apríl 2026.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 28. apríl 2026.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Sigríður Kristjánsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 29. apríl 2026

Tengd mál