Fara beint í efnið
Sýslumenn Forsíða
Sýslumenn Forsíða

Sýslumenn

Um sameiningu sýslumannsembætta

Þessi upplýsingasíða er ætluð almenningi og var sett upp í tengslum við sameiningu sýslumannsembætta samkvæmt lögum nr. 9/2026 um sýslumenn, sem Alþingi samþykkti 2. febrúar 2026. Sameiningin tekur gildi 1. janúar 2027.

Í dag eru níu sýslumannsembætti með 27 starfsstöðvar um land allt. Við gildistöku sameiningarinnar er gert ráð fyrir að þessar starfsstöðvar haldi áfram starfsemi sinni og að starfsfólk flytjist yfir í hið nýja embætti sýslumanns.

Markmið sameiningarinnar er að bæta þjónustu við almenning, tryggja hagkvæman rekstur og styðja við byggðamál. Þjónustan mun að meginstefnu haldast óbreytt við gildistöku, en með sameiningunni skapast aukin tækifæri til að samræma þjónustu og bæta aðgengi að henni óháð búsetu, jafnframt því að efla starfsemi um land allt og standa vörð um þjónustu og störf á landsbyggðinni.

Auðlesið - Sameining sýslu­manna

Upplýsingar um sameiningu sýslumanna á auðlesnu máli

Smelltu hér

Sýslumenn

Höfuðborgarsvæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Austurland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vesturland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Suðurland

Mán. til fös. 9 - 15

Vestfirðir

Mán. til fim. 9:00 - 15
Fös. 9:00 - 13:30

Vestmannaeyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 -14

Norðurland vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15

Norðurland eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14