Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Samnorrænn COST kynningarfundur

12. maí 2026

11:30 til 13:00

Vefviðburður

Í annað sinn munu tengiliðir COST (CNC) á Norðurlöndunum fimm með þátttöku Færeyja standa fyrir sameiginlegum stafrænum kynningarfundi um hin ýmsu tækifæri sem felast í þátttöku í COST-verkefnum. Á fundinum verður fjallað um hvernig hægt er að taka þátt í verkefnum (minna um sjálft umsóknarferlið) og þátttakendur í COST-verkefnum segja frá reynslu sinni. Einnig verður gefinn tími fyrir spurningar.

Þátttakendur eru hvattir til að senda fyrir fram inn ábendingar um umræðuefni sem þeir vilja að tekin verði fyrir til umsjónaraðila í sínu landi.

Viðburðurinn fer fram á ensku. Hann verður ekki tekinn upp.

Skrá mig á COST samnorrænan kynningarfund

Nánari upplýsingar um dagskrána verða veittar þegar nær dregur 12. maí.

Allt fræðufólk frá Norðurlöndunum sem hefur áhuga á þeim tækifærum sem þátttaka í COST samstarfsnetum býður upp á er hvatt til að sitja fundinn.

Lesa meira um COST áætlunina

Tengiliður COST á Íslandi:
Bylgja Valtýsdóttir (cost@rannis.is)